Fara á efnissvæði

Lýsing

BlindShell Classic 3 er sími hannaður af blindum, fyrir blinda og sjónskerta. Hann er með íslenskt viðmót sem talar einnig íslensku, áþreifanlegum hnöppum, öflugum hátalara, raddstýringu og ýmsum öðrum eiginleikum. Síminn er auðveldur í notkun og hentar vel við athafnir daglegs lífs. BlindShell Classic 3 hlaut verðlaunin „Besta varan á Sight City 2025“ (sigurvegari FeelVision verðlaunanna) fyrir aðgengi og nýsköpun.

Pakkinn inniheldur: BlindShell farsíma, rafhlöðu, USB-C hleðslusnúru, hleðslustöð, hleðslutæki, snúru, heyrnartól.

Helstu eiginleikar:

Luna – Gervigreindaraðstoðarmaður.
Notaðu raddskipanir til að senda skilaboð, stilla vekjara, athuga veðrið og fleira – gerir dagleg verkefni einfaldari.

Observo.
Taktu myndir og fáðu lýsingu á umhverfinu.

Hraðval.
Hringdu í helstu tengiliðina þína með því að smella á einn hnapp.

Raddstýring.
Njóttu handfrjálsrar stjórnar með einföldum raddskipunum.

FM og internetútvarp.
Hlusta á tónlist, fréttir og uppáhaldsútvarpsstöðvar hvenær sem er, hvar sem er.

Aðstoðartól.
Inniheldur NFC-merkingu hluta, stækkunargler, staðsetningu og fleira – gefur þér þau verkfæri sem þú þarft í daglegum athöfnum.

Flýtivalmynd.
Gerðu breytingar á stillingum eins og hraða raddlestri, dimma skjáinn eða umbreytingu lita með einföldum aðgerðum.

Síminn styður ekki 100% við notkun rafrænna skilríkja á SIM-korti eins og eru notuð mikið á Íslandi. Margir notendur segja þó að síminn virki fyrir þá með þessum skilríkjum, en Blindrafélagið getur ekki ábyrgst að þau virki.

Athugið að félagar í Blindrafélaginu geta keypt símann með afslætti og er því betra að kaupa hann gegnum skrifstofu félagsins í síma 525 0000.

BlindShell er þróaður og hannaður í Prag af Matapo a.s.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu BlindShell. https://www.blindshell.com/

BlindShell Classic 3 sími

Vöruupplýsingar

113.900 kr

Veldu hversu margar einingar þú vilt setja í körfu.