Fara á efnissvæði

Lýsing

Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins 2026
Stuðningur til sjálfstæðis!

Dregið verður 15. desember 2026

Glæsilegir vinningar! Alls 221 skattfrjálsir vinningar að andvirði 46.814.625 kr.

Volkswagen ID Polo 100% rafmagnaður, frá Heklu að verðmæti 5.490.000 kr.
10 gjafabréf frá Erninum, hvert að verðmæti 500.000 kr.
60 gjafabréf frá 66°Norður, hvert að verðmæti 100.000 kr.
25 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti 300.000 kr.
30 Bónusgjafakort, hvert að verðmæti 100.000 kr.
15 Samsung Galaxy Tab S11 Wifi 128GB, hver að verðmæti 169.995 kr.
15 Samsung Galaxy S26 Ultra 256GB, hver að verðmæti 254.990 kr.
15 Samsung Galaxy Flip8 256GB, hver að verðmæti 229.990 kr.
50 gjafabréf frá Útilíf, hvert að verðmæti 200.000 kr.

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfsemi sína að stærstum hluta með sjálfsaflafé. Með kaupum á happdrættismiða styður þú beint starf Blindrafélagsins og hjálpar til við að efla sjálfstæði blindra og sjónskertra einstaklinga á öllum aldri.

Stuðningur þinn hjálpar til við að bæta lífsgæði þeirra sem nýta sér þjónustu félagsins og stuðlar jafnframt að samfélagi þar sem allir fá tækifæri til virkrar þátttöku. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að Blindrafélagið geti haldið úti öflugri og fjölbreyttri starfsemi.

Vinningaskrá verður birt á heimasíðu Blindrafélagsins www.blind.is.
Upplag 71.000 miðar.
Vinninga ber að vitja innan árs.
Gjafabréf Heimsferða gilda í tvö ár frá afhendingu.
Bónusgjafakort gilda í fjögur ár frá útgáfudegi.
Vinningsbíll getur verið frábrugðinn þeim bíl er birtur er á mynd happdrættismiðans.

Happdrætti Blindrafélagsins - Vetur 2026

Vöruupplýsingar

3.900 kr

Veldu happdrættismiðanúmer í listanum hér fyrir neðan. Miðanúmerin sem eru í boði í þessu happdrætti eru á bilinu 55001 - 71000. Þú getur einnig leitað að lausu númeri með því að nota textareitinn hér að ofan og slegið inn miðanúmer. Til að taka frá og kaupa miðanúmer skaltu velja miðanúmer og setja það svo í körfuna. Til að kaupa fleiri happdrættismiða getur þú valið nýtt miðanúmer og sett það í körfuna..

Veldu miðanúmer

Sæki tiltæk númer...

Þetta miðanúmer er því miður frátekið eða ekki tiltækt.