1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefnum https://www.blind.is/ eigu Blindrafélagið. KT: 470169-2149, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík, – í skilmálum þessum nefnt Blindrafélagið. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Blindrafélagsins annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.
„Söluaðili“ er fyrirtæki sem býður vöru eða þjónustu til sölu á https://www.blind.is/
„Kaupandi“ er einstaklingur sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup.
Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.
2. Persónuupplýnsingar
Blindrafélagið meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast Blindrafélaginu eru skráðar rafrænt í gagnagrunn Blindrafélagsins og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.
Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi Blindrafélaginu samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Blindrafélagsins í tölvupósti á blind@blind.is eða bréflega á heimilisfang Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.
Blindrafélagið áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að hafa samband við viðskiptavini í þeim tilgangi að miðla til þeirra upplýsingum um starfsemi félagsins m.a. fréttum, fræðslu og/eða kynna fyrir þeim fleiri leiðir til að styrkja starfsemina.
3. Frágangur viðskipta
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Blindrafélagsins.
Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum Blindrafélagsins.